Igloo gerir leigusölum kleift að takmarka hækkanir leiguverðs við verðbólgumarkmið Seðlabankans
Leigusalar sem hyggjast verðtryggja samninga sína geta nú tengt hækkanir við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands í stað vísitölu neysluverðs

Þótt dregið hafi verulega úr verðtryggingu leigusamninga eftir nýlegar lagabreytingar þá er enn stór hluti leigusala sem tengir samninga sína við vísitölu neysluverðs.
Vísitala neysluverðs byggir meðal annars á leiguverði og því getur víðtæk tenging leigusamninga við vísitölu neysluverðs skapað víxláhrif til hækkana umfram það sem eðlilegt væri.
Ef allir leigusamningar væru verðtryggðir og myndu hækka mánaðarlega út frá vísitölu neysluverðs færi sú hækkun beint inn í næstu verðbólgumælingu að hluta og myndi viðhalda örlítið hærri verðbólgu en ella.
Stjórnvöld hafa gripið til aðgerða sem miða að því að draga úr þessu, s.s. með því að takmarka vísitölutengingu við samninga sem eru lengri en eitt ár.
Mikill meirihluti leigusamninga á Íslandi er gerður í gegnum Igloo en inni á vefnum myigloo.is þar sem leigusalar gera leigusamninga geta þeir nú í stað þess að tengja samninga sína við vísitölu neysluverðs tengt leiguverðsbreytingar við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands sem miðast við fasta 2,5% hækkun verðlags á ári.

Verðbólga mælist í dag um og yfir 5% og því myndu verðbreytingar leigusamninga sem tengdir væru verðbólgumarkmiði því tempra að einhverju marki hækkanir vísitölunnar og þar með verðlags í landinu.
Stjórnvöld hyggja á enn frekari takmarkanir á breytingu leiguverðs. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði nýverið breytingar á reglum um vísitöluhækkanir húsaleigu þannig að leiga megi aðeins hækka einu sinni á tólf mánaða tímabili.
Igloo tryggir að leigusamningar séu gerðir í samræmi við gildandi húsaleigulög hverju sinni og myndi möguleiki leigusala á árlegri tengingu við verðbólgumarkmið því auka enn frekar áhrifamátt boðaðra lagabreytinga, ekki bara fyrir leigutaka heldur fyrir almenna verðlagsþróun í landinu.
Möguleikinn sem leigusalar hafa er valkvæður en Igloo hvetur leigusala til að sýna samfélagslega ábyrgð og taka þátt í að vinna að fyrirsjáanleika á leigumarkaði en leiguverð myndar í dag um fjórðung vísitölu neysluverðs. Igloo kallar því eftir samstilltu átaki leigusala um að miða verðhækkanir sínar við verðbólgumarkmið sé komist hjá öðru.
Slíkt átak á leigumarkaði gæti skapað fordæmi fyrir aðra geira samfélagsins þar sem verðtrygging er útbreidd og tengingar við vísitölu neysluverðs gætu því almennt færst úr því formi yfir í verðbólgumarkmið.
Tengdar greinar

Igloo og Straumlind í rafmagnað samstarf fyrir leigjendur
Igloo og raforkusalinn Straumlind hafa tekið höndum saman og bjóða nú leigutökum að einfalda eitt flóknasta skrefið við að flytja.Leigjendur geta nú valið raforkukaup frá Straumlind beint í undirritunarferli leigusamnings hjá Igloo á sama tíma og þeir tryggja sér hagstæðasta verð á rafmagni sem völ er á hverju sinni. Leigutakar sem þurfa að greiða rafmagn geta pantað rafmagn með einum smelli og Straumlind sér um framhaldið og klárar flutninginn í samstarfi við viðeigandi dreifiveitu.Fjarlægjum núningHingað til hefur þetta ferli oft kallað á handvirkar skráningar, eyðublöð, samskipti við marga aðila og óvissu á sama tíma og fólk stendur í flutningum. Samstarf