Leiguvefur igloo notar kökur.

Sjá nánar um kökustefnu.
News

Igloo og Straumlind í rafmagnað samstarf fyrir leigjendur

Leigjendur geta nú gengið frá raforkukaupum um leið og þeir skrifa undir leigusamning hjá Igloo (myigloo.is)

VM
Vignir Már Lýðsson··3 mín lestur
Igloo og Straumlind í rafmagnað samstarf fyrir leigjendur

Igloo og raforkusalinn Straumlind hafa tekið höndum saman og bjóða nú leigutökum að einfalda eitt flóknasta skrefið við að flytja.

Leigjendur geta nú valið raforkukaup frá Straumlind beint í undirritunarferli leigusamnings hjá Igloo á sama tíma og þeir tryggja sér hagstæðasta verð á rafmagni sem völ er á hverju sinni. 

Leigutakar sem þurfa að greiða rafmagn geta pantað rafmagn með einum smelli og Straumlind sér um framhaldið og klárar flutninginn í samstarfi við viðeigandi dreifiveitu.

Fjarlægjum núning

Hingað til hefur þetta ferli oft kallað á handvirkar skráningar, eyðublöð, samskipti við marga aðila og óvissu á sama tíma og fólk stendur í flutningum. Samstarf Igloo og Straumlindar fjarlægir þennan núning og gerir rafmagnið að eðlilegum hluta af stafrænu innflutningsferli.

„Við viljum að það sé jafn auðvelt að ganga frá rafmagni og að panta pítsu á flutningsdegi. Þegar fólk skrifar undir leigusamning á Igloo á það ekki að þurfa að velta því fyrir sér hvað gerist næst. Það þarf bara að vera rafmagn í innstungunum,“ 

segir Vignir Már Lýðsson, framkvæmdastjóri Igloo.

„Markmið okkar er að gera leiguferlið einfalt, öruggt og stafrænt frá upphafi til enda. Samstarfið við Straumlind er mikilvægt skref í þá átt en þau eru fyrsta þjónustufyrirtækið sem gengur til samstarfs við okkur á þeim forsendum að bjóða leigutökum betri kjör í krafti fjöldans sem notar Igloo en við munum kynna fleiri til leiks á næstunni,“

segir Vignir.

Straumlind leggur áherslu á gagnsæi, einfaldleika og þjónustu sem mætir fólki þar sem það er statt. Með samstarfinu verður raforkuval hluti af ferli sem leigjendur eru hvort sem er að ganga í gegnum.

„Flutningar eiga ekki að vera flóknari en þeir þurfa að vera. Með þessu samstarfi getum við tekið við keflinu um leið og leigjandinn skrifar undir leigusamning og séð til þess að rafmagnið komist í rétt horf. Þetta er einfaldara fyrir leigjandann, skilvirkara fyrir alla aðila og betri upplifun frá fyrsta degi,“ 

segir Símon Einarsson, framkvæmdastjóri Straumlindar.

Samþættingin er aðgengileg leigjendum sem ganga frá leigusamningum á vettvangi Igloo og þurfa að skrá rafmagn á sitt nafn við upphaf leigutíma eða er nú þegar með virkan samning hjá Igloo en yfir 15 þúsund heimili á leigumarkaði nota Igloo í dag og yfir 75 þúsund skráðir notendur.

Um Igloo

Igloo er leiðandi fasteignatæknifélag á Íslandi sem þróar stafrænar lausnir fyrir leigumarkaðinn. Lausnir Igloo einfalda samskipti leigusala og leigjenda, þar á meðal með rafrænum leigusamningum, leiguábyrgðum, sjálfvirkri reikningagerð fyrir leigu og annarri þjónustu sem gerir leiguferlið skilvirkara og öruggara.

Um Straumlind

Straumlind hefur leitt verðlækkun á raforkumarkaði frá árinu 2021 og er einn hagstæðasti raforkusali landsins. Straumlind hefur einnig verið brautryðjandi í nýjum lausnum fyrir landsmenn og býður meðal annars upp á vörur eins og ódýrara rafmagn á nóttunni og fyrirframgreitt rafmagn.


Nánari upplýsingar

Vignir Már Lýðsson
Framkvæmdastjóri Igloo
Netfang: vignir@leiguskjol.is
Sími: +354 869 2388