




Bankastræti 8
545 Skagaströnd
ÍBÚÐ Á SKAGASTRÖND. Þessi bjarta og fallega miðhæð er 87.5m2 að stærð auk 4.0m2 forstofu með skóskáp. Alls 91.5m2. Um er að ræða 2 rúmgóð sérherbergi bæði með rafmagnsrúmum, annað með "55 smart TV á vegg og hitt sérlega rúmgott. 6 manna opin borðstofa, betri stofa með hvítum leðurhúsgögnum og arinn og 55" bogalöguðu smart TV á hjólum, nýtt eldhús með 220cm háum ísskáp, eldhúskrókur með 3 háum stólum, rúmgott wc með stórri sturtu með glerskilrúmi og sérstakt þvottahús er innan hæðar með sambyggðri þvottavélþurrkara. íbúðin er öll glæsilegsta, öll nýuppgerð og með öllum mögulegum húsbúnaði, tækjum eldunar- og borðbúnaði. Húsið (Bjarnarhöfn) stendur efst til norðurs í þorpinu, beint undir fuglafriðlandinu og útivistarsvæðinu við Spákonuhöfða og hefur einstaklega fallegt suður útsýni til klettabeltis að baki og víða og opna sýn til suðurs yfir bæinn, höfnina, til fjalla og út til sjávar. Sundlaug, veitingastaður og hótel nærri. Stutt í skóla, heilsugæslu, bókasafn, kirkju, frábæra verslun til suðurs og sendinni strönd til norðurs. Stór og barnvæn lóð með steinhlöðnu eldstæði fylgir húsinu. Næg bílastæði.
Fylgifé
Ísskápur
Örbylgjuofn
Uppþvottavél
Þurrkari
Þvottavél
Eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
240.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
240.000 kr
Tryggingafé
1 mánuður / 240.000 krInnflutningsverð
480.000 kr
Leigt út af Guðjón Bjarnason