




Hallgerðargata 11
105 Reykjavík
Til leigu splúnkuný og falleg 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð að Hallgerðargötu 11.
Mikil þjónusta hefur verið að byggjast upp í hverfinu, spennandi staðsetning sem er í göngufæri við miðborgina. Þetta er íbúð fyrir kröfuharða, geggjuð eign.
Svalir snúa til vesturs með fallegu útsýni yfir hafflötin.
Stutt er að fara í Laugardalinn eða Borgartún og sækja þar þjónustu og einnig er stutt í miðbæinn, í kringum korters labb á Laugarveginn. Eignin er partur af rólegum stigagangi og er lyfta milli hæða. Íbúðin leigist með nýjum (athugið allt hér upptalið er nýkeypt inn) fallegum stofuhúsgögnum, 65" sjónvarp og skenkur, útihúsgögn á svalir, tvíbreið rúm og náttborð í báðum herbergjum (annað rúmið er King size), allt lín s.s. sængur koddar og etc er nýtt og fylgir með, sjónvarp, mottur, gluggatjöld og gardínur. eldhús með öllum tækjum, ískápur og frystir, uppþvottavél, eldhúsborð og stólar, nýtt leirtau, gæða Nespresso kaffivél, ketill, ristavél. þvottavél og þurrkari, ryksuga, straujárn etc . Möguleiki er að fá framlengingu á leigu.
Innifalið í leiguverði eru tryggingar og húsfélagsgjöld.
Trygging:
Umsækjandi útvegar tryggingu sem nemur 3 mánaða leigu í formi bankaábyrgðar, ábyrgðar frá Leiguvernd eða Sjóvá eða að trygging er lögð inn á reikning leigusala. Þegar trygging liggur fyrir er hægt að undirrita leigusamning.
Leigusali óskar einnig eftir því að fá frá tilvonandi leigjendum: Lánshæfismat frá Creditinfo til skoðunar, geymslu og flokkunar í tengslum við umsókn umsækjanda um íbúð sem ábyrgðaraðili á og hyggist leigja út. Að ábyrgðaraðili hafi heimild til að fletta umsækjanda upp á vanskilaskrá Creditinfo og geyma þær upplýsingar á sama máta og ofangreind gögn.
Öllum umsækjendum verður svarað skriflega.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Örbylgjuofn
Þurrkari
Þvottavél
Geymsla
Svalir
Bílskúr
Eldhús
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
375.000 kr
134 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 nóv 2023
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
375.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.125.000 krInnflutningsverð
1.500.000 kr
Leigt út af Gunnar Örn Örlygsson