




Hlaðbær 6
110 Reykjavík
Glæsilegt 188 fm einbýli á einni hæð í Árbænum. Lýsing: Stór og björt stofa með gluggum sem vísa til suðurs, gegnheilt eikarparket á gólfi. Eldhús er nýuppgert með stílhreinni innréttingu og veglegri steinborðplötu. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur frá Siemens og 80cm Siemens helluborð með innbyggðri viftu. Eldhús er flísalagt með gólfhita. Útfrá eldhúsi er þvottahús sem einnig er nýuppgert, flísalagt og með gólfhita. Sérútgangur í bakgarð frá þvottahúsi. Forstofa er flísalögð með góðu skápaplássi og gestasalerni er innan af henni. Svefnherbergisgangur er aðskilinn alrýminu og er hann rúmur og bjartur með gegnheilu eikarparketi. Þaðan er útgengt á skjólgóðan pall sem vísar til suðurs. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Gegnheilt eikarparket á gólfum og innbyggðir skápar í hjónaherbergi. Baðherbergi innan af svefnherbergisgangi er flísalagt í hólf og gólf með veglegri innréttingu og vönduðum tækjum. Innbyggð “walk in” sturta og gólfhiti. Skipt var um þak og stóran hluta glugga 2021 og 2022. Húsið tekið í gegn að utan sumarið 2026 og verður ný málað við afhendingu. Húsið er einstaklega vel staðsett; gatan liggur upp við Elliðaárdalinn með góðum hjóla- og gönguleiðum niður í Fossvog og upp í efri byggðir. Skóli, leikskólar, bókasafn, heilsugæsla, sundlaug og tvær kjörbúðir í um 5 mínútna göngufjarlægð. Einnig eru auðveldar almenningssamgöngur frá húsinu.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
540.000 kr
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
540.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.620.000 krInnflutningsverð
2.160.000 kr
Leigt út af Marta Sigrún Jóhannsdóttir