




Sólvallagata 63
101 Reykjavík
Rúmgott og fjölskylduvænt húsnæði í gamla Vesturbænum til langtímaleigu.
Til leigu er fallegt og vel staðsett 140 fm húsnæði á tveimur hæðum í þriggja hæða húsi í rólegu og skemmtilegu hverfi í gamla Vesturbænum. Húsið er laust frá 1. ágúst 2026 (umsemjanlegt) og er leitað að langtímaleigjendum (að lágmarki 12 mánuðir).
Húsið hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldu eða aðila sem vilja rúmgott og notalegt heimili á eftirsóttum stað, með góðu aðgengi að hverfisskólum, alþjóðlegum skóla, allri þjónustu og að sjálfsögðu miðbæ Reykjavíkur.
Skipulag:
Neðri hæð:
Á neðri hæð er anddyri, nýuppgert eldhús með öllum heimilistækjum og innréttingum endurnýjuðum (2026), borðstofa, setustofa og sjónvarpsstofa/skrifstofa. Útgengt er út í afgirtan og skjólsaman garð með stórum palli.
Efri hæð: Á efstu hæð eru þrjú stór og rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi sem var endurnýjað 2023. Hjónaherbergi er með stórum gluggum og góðri birtu. Þvottavélatengi er á baðinu og þvottavél fylgir eigninni (hún er ekki á myndunum).
Aðstaða og helstu kostir:
• Tvö einkabílastæði á upphitaðri lóð (sjaldgæft í miðbænum) • Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla í bílastæðum við hliðina á • Nýir gluggar í öllu húsinu • Nettenglar eru í flestum rýmum ásamt Unifi Wifi kösturum. • Skjólsamur, afgirtur garður með palli • Stutt í skóla (Vesturbæjarskóla og Landakotsskóla) sundlaug, matvöruverslanir og miðbæinn
Bílskúr við húsið fylgir ekki með leigunni.
Húsið leigist að mestu án húsgagna, en möguleiki er á að semja um að hluti þeirra fylgi. Verðið miðast við að eigandi borgi hita og rafmagn (miðað við að notkun sé innan eðlilegra marka fyrir hefðbundinn rekstur hússins) og umsemjanlegt að eigandi borgi internet.
Ekki er heimilt að framleigja eignina eða nýta hana til annars en hefðbundinnar íbúðarleigu án samþykkis eiganda.
Verðið miðast við að húsið fari í langtímaleigu, þ.e. eitt ár eða lengur.
Áhugasamir eru beðnir um að senda skilaboð með stuttri kynningu á sér og heimilishaldi hér eða í tölvupósti á joiskuli@gmail.com
Fylgifé
Þvottavél
Ísskápur
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 6 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
580.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
580.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 1.160.000 krInnflutningsverð
1.740.000 kr
Leigt út af Jóhann Skúli Jónsson