




Hrefnugata 2
105 Reykjavík
Yndisleg íbúð á frábærum stað í Norðurmýrinni, rólegu hverfi rétt við miðbæinn. Klambratúnið er handan við hornið og mikið af verslun og þjónustu í göngufæri. Stór sólríkur garður er við húsið og nokkrir leikvellir í nágrenninu.
Íbúðin er rúmgóð og björt með stórum gluggum sem snúa að garðinum. Hún er með tveimur samliggjandi stofum sem hægt er að loka á milli og rúmgott eldhús er út frá ganginum með uppþvottavél og góðum eldhústækjum. Skrifstofa er innan af annarri stofunni og þaðan er stigi upp að svefnlofti og geymslu. Hjónaherbergi með góðum fataskápum og litlum svölum. Stórt barnaherbergi er á jarðhæð og svefnloftið er líka nýtt sem barnaherbergi, en það er opið frá skrifstofunni. Baðherbergi er nýuppgert og með stórri sturtu. Aðkoma að íbúðinni er í gegnum sameiginlegan stigagang og þar er gott pláss fyrir skó og útiföt. Aukaísskápur og frystiskápur er í geymslu í kjallara en einnig er góð geymsla á loftinu. Sameiginlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara er í kjallara og þar er líka aðstaða til að geyma hjól.
Íbúðin er leigð út með húsgögnum sem myndu henta best pari með börn.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Þurrkari
Þvottavél
Geymsla
Svalir
Eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Hiti innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
Laus frá
5 jan 2027
Leigutímabil
4 - 6 mánuðir
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 420.000 krInnflutningsverð
840.000 kr
Leigt út af Herborg Árnadóttir