




Sunnusmári 18
201 Kópavogur
4 herbergja íbúð auk geymslu og bílastæðis í kjallara. Laus strax. Engin gæludýr leyfð, reyklaus íbúð. Lyfta er í húsinu. Íbúðin er á 2. hæð. Svalir í vestur. Leigist án húsgagna. Eignin skiptist í anddyri með fataskápum. Stofa og eldhús í opnu rými þaðan sem útgengt er á vestursvalir. Þrjú svefnherbergi með fataskápum. Einnig er útgengt á svalir úr hjónaherbergi Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Upphengd salernisskál og vönduð hreinlætistæki frá Tengi ehf. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Sérgeymsla í kjallara.
Glæsileg, vönduð og vel skipulögð íbúð í nýjasta hluta Smárans í Kópavogi sem er nútímalegt borgarhverfi þaðan sem stutt er í þjónustu verslana og þjónustu s.s. Smáralind, heilsugæslu, skóla og íþróttaaðstöðu ásamt því sem aðgengi að stofnbrautum og þjónustu almennisvagna er afar auðveld. Ath að nokkrar meðfylgjandi mynda eru úr sýningaríbúð sem er næstum því alveg eins og íbúðin sem er til leigu en borðkrókur er öðruvísi.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hússjóður innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hiti innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 Nov 2026
Leigutímabil
6 - 15 mánuðir
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.110.000 krInnflutningsverð
1.480.000 kr
Leigt út af Hrefna Ingólfsdóttir