

Holtagata 6
520 Drangsnes
-= Sækja þarf um á briet.is =-
Til leigu 94,3 fm, 4 herbergja íbúð í parhúsi við Holtagötu 6 á Drangsnesi
Eignin skipist í forstofu með fataskáp, 3 svefnherbergi með fataskápum, opið eldhús með fallegri innréttingu, rúmgóða og bjarta stofu með glugga á 2 vegu og aðgengi út á sólpall. Hátt er til lofts í stofu og eldhúsi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og hefur að geyma sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og góða innréttingu. Þvottahúsið er flísalagt og þar er til staðar innrétting fyrir þvottavél. Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi og svefnherbergjum á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi eru flísar. Gólfhiti er í allri íbúðinni og kynt með hitaveitu.
Leigufjárhæð er tengd vísitölu neysluverðs. Rafmagn er ekki innifalið í leigu.
Leigusamningur er ótímabundinn.
Gæludýrahald óheimilt.
Leggja þarf fram tryggingu sem nemur 2ja mánaða leigu, sem getur verið í formi bankaábyrgðar, tryggingarfé lagt inn á leigusala, leigugreiðslu- og viðskilnaðartrygging sem leigjandi kaupir hjá viðurkenndu tryggingafélagi.
Ekki er hægt að skoða eign nema af myndum á netinu, nema fyrir þann aðila sem fær íbúðina úthlutaða í leigu, hann getur þó neitað henni eftir skoðun.
Fylgifé
Ísskápur
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
180.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
180.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 360.000 krInnflutningsverð
540.000 kr
Leigt út af Leigufélagið Bríet