




Eddufell 8
111 Reykjavík
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is. Hér er slóð á íbúðina https://www.ivera.is/leita-ad-ibud/reykjavik-649fermetrar-s5-ibu-00002u
Til leigu notaleg 2 herbergja íbúð í Eddufelli 8. Íbúðin er 64,9 fermetrar á þriðju hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús og stofa með útgengi út á svalir.
Nánari lýsing
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi. Forstofan er flísalögð.
Eldhús/stofa: Fallegt og opið eldhús samliggjandi stofunni. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu og fylgja því með. Falleg og björt stofa þar sem útgengt er á stórar svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt með sturtu og upphengdu salerni. Rúmgóð baðinnrétting og speglaskápur. Inn á baðherbergi er innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi: Í eigninni er eitt svefnherbergi, parketlagt með fataskáp.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 312.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign, rafmagnsnotkun er greidd af leigutaka.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
312.000 kr
Laus frá
11 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
312.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 936.000 krInnflutningsverð
1.248.000 kr

Leigt út af Ívera ehf.