




Hlíðarfótur 13
102 Reykjavík
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is Hér er slóðin að íbúðinni. https://www.ivera.is/leita-ad-ibud/reykjavik-805fermetrar-s5-ibu-0002f5
Laus til leigu glæsileg íbúð að Hlíðarfæti 13, Hlíðarenda, Reykjavík
Íbúðin er 80,5 fm og er þriggja herbergja á þriðju hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi. Íbúðinni fylgja gardínur, ljós í öllum rýmum, ísskápur og uppþvottavél. Lyfta er í húsinu og stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir.
Nánari lýsing Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í rúmgott anddyri, þar er rúmgóður fataskápur. Eldhús/sofa: Fallegt opið eldhús með stórri eyju. Eldhús er samliggjandi stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á svalir með fallegu útsýni yfir flugbrautina. Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum. Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum Geymsla: 14,3 fm geymsla í sameign hússins
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 382.000 kr. og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.
Kostir þess að leigja hjá Íveru Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
382.000 kr
Laus frá
11 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
382.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.146.000 krInnflutningsverð
1.528.000 kr

Leigt út af Ívera ehf.