




Eskiás 2H
210 Garðabær
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu íveru www.ivera.is. hér er slóð að auglýsingunni. https://www.ivera.is/leita-ad-ibud/gardabae-90fermetrar-s5-ibu-0002wb
Laus til leigu, glæsileg og falleg 3ja herbergja íbúð með aukinni lofthæð!
Velkomin inn í nýtt og vandað 90 fm heimili að Eskiás 2, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn á annarri hæð utanhúss og innan íbúðar upp á þriðju hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu með fataskáp, gengið er úr forstofu upp teppalagðan stiga upp á þriðju hæð. Komið er upp í opið og skemmtilegt rými þar sem eldhús og stofa mynda sameignilegt alrými. Gengið er út á svalir úr stofu sem snúa inn í sameiginlegan inngarð hússins. Eldhúsið er með miklu skápaplássi og fallegri eyju upp við vegg. Fyrir ofan eldhúsinnréttingu er skemmtilegur gluggi sem hleypir aukinni birtu inn í eignina.
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðhergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér 3,7 fm geymsla er innan íbúðar en einnig er hægt að nýta rými undir stiga sem geymslurými.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni. Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og með rafbílahleðslukerfi. Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 384.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Kostir þess að leigja hjá Íveru Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Hér er 3D sýning af íbúðinni: https://my.matterport.com/show/?m=HB8PivsbJLz
Fylgifé
Ísskápur
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
384.000 kr
Laus frá
11 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
384.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.152.000 krInnflutningsverð
1.536.000 kr

Leigt út af Ívera ehf.