




Skógarás 13
110 Reykjavík
Tveggja herbergja 74,4 fm íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi með sérinngangi við Skógarás 13 í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu en út frá stofu er 36 fm pallur með geymsluskúr.
Innan íbúðar er geymsla með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt hillueiningum sem nýtast vel til geymslu. Rúmgott baðherbergi með bæði baðkari og sturtu, ásamt innréttingu með tveimur vöskum og handklæðaofni. Eldhúsið er bjart en því fylgir ísskápur og uppþvottavél. Stofan er björt og rúmgóð en út frá stofu er hurð út á pall með innbyggðri kattalúgu svo kisur eru velkomnar :) Svefnherberginu fylgir stór og veglegur fataskápur með innbyggðri lýsingu. Á pallinum er stór og veglegur geymsluskúr sem er um að gera að nýta undir garðhúsgögn, grill eða annað sniðugt.
Leik- og grunnskóli er í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá eigninni fyrir utan ægifagran Elliðarárdalinn, Árbæjarlaug, kaffihús og allt það helsta sem maður þarf til að koma sér fyrir í rótgrónu fjölskylduhverfinu.
Íbúðin leigist ÁN húsgagna og ber leigjandi kostnað af rafmagni.
Óskað er eftir traustum, reglusömum og reyklausum leigjendum sem leggja áherslu á góða umgengni og fara vel með eignina. Meðmæli frá fyrri leigusala eru æskileg.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
395.000 kr
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 790.000 krInnflutningsverð
1.185.000 kr
Leigt út af Þórhildur Vala Kjartansdóttir