




Rauðavað 19
110 Reykjavík
Björt og rúmgóð íbúð með húsgögnum, stórum palli og bílskýli í Norðlingaholti
Til leigu er falleg og björt 117 fm fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í Norðlingaholti í Reykjavík. Íbúðin leigist með húsgögnum og er tilvalin fyrir fjölskyldu sem vill koma sér vel fyrir í rólegu og fjölskylduvænu hverfi.
HELSTU KOSTIR ÍBÚÐARINNAR:
- Sérinngangur í litlum, sex íbúða kjarna.
- Stór og rúmgóður pallur með upphitaðri útigeymslu.
- Sér skrifstofuherbergi sem getur einnig nýst sem aukarými fyrir fjölskylduna.
- Gluggar á baðherbergi og í þvottahúsi sem veita góða náttúrulega birtu.
- Bílskýli með þvottaaðstöðu.
- Þvottavél, þurrkari, ísskápur og uppþvottavél fylgja.
- Frábær staðsetning
Stutt er í leikskóla og grunnskóla og Bónus og apótek eru í um 200 metra fjarlægð. Náttúran er við bæjardyrnar, með Heiðmörk og Rauðavatn í næsta nágrenni og fjölbreyttum möguleikum til útivistar.
LEIGUKJÖR:
- Mánaðarleiga: 450.000 kr.
- Húsgögn, hiti, rafmagn og hússjóður innifalin.
- Laus frá 18. janúar 2027.
- Langtímaleiga æskileg.
Óskað er eftir traustum, reglusömum og reyklausum leigjendum sem leggja áherslu á góða umgengni og fara vel með eignina. Meðmæli frá fyrri leigusala eru æskileg.
Áhugasamir eru velkomnir að senda stutta kynningu á sér í gegnum Igloo.
Fylgifé
Þurrkari
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
450.000 kr
Laus frá
18 jan 2027
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
450.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 450.000 krInnflutningsverð
900.000 kr
Leigt út af Valdís Beck