


Álftröð 7
200 Kópavogur
Um er að ræða einstaklega vel hannaða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegri blokk í 200 Kópavogi. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, baðherbergi og alrými. Úr íbúðinni er útgengt á sérafnotareit um sérútgang. Bílastæði og geymsla í kjallara fylgir íbúðinni. Í sameign er að finna rúmgóða læsta hjólageymslu. Eignin leigist án húsgagna. Rúmgóður fataskápur er í svefnherberginu, ásamt minni fataskáp í andyri íbúðarinnar. Eldhúsinnrétting er fullbúin með uppþvottavél, ísskápi, ofni og spanhelluborði frá AEG. Inni á baði er þvottvél frá Samsung með þurrkunarstillingu. Húsið er svansvottað, og er því hljóðvist og náttúrulegt ljósmagn íbúðarinnar í fremsta flokki. Stutt er í alla helstu þjónustu, en eignin er staðsett við hliðina á bæði Menntaskólanum í Kópavogi og Kópavogsskóla. Stutt er í Hamraborg og því einstaklega þægilegt að notast við almenningssamgöngur. Hægt er að nálgast upplýsingar um blokkina í heild sinni, þar á meðal skilalýsingu og grunnmyndir á vefsíðunni https://digranes.is/
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
280.000 kr
Laus frá
2 des 2026
Leigutímabil
12 - 18 mánuðir
Fyrsti mánuður
280.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 840.000 krInnflutningsverð
1.120.000 kr
Leigt út af Bjarki Daníel