




Lækjasmári 58
201 Kópavogur
2JA HERBERGJA ÍBÚÐ TIL LEIGU – LAUS STRAX!
Falleg og vel um gengin tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í snyrtilegu fjölbýli í Kópavogi. Íbúðin er með sérinngangi og lokuðum sérgarði sem snýr í suður.
Nánar um íbúðina:
- Um 65 m².
- Leigist í 1-2 ár.
- Rúmgóð og björt stofa með útgengi út á afgirta stétt sem snýr í suður.
- Eldhús með kirsuberjaviðarinnréttingu, góðu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu.
- Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp.
- Stórt, nýuppgert baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu og upphengdu salerni.
- Sér þvottahús innan íbúðar.
- Flísar og parket á gólfum.
- Sérinngangur og afgirt stétt.
- Sérbílastæði fylgir íbúð.
Íbúðin leigist með húsgögnum og helstu heimilistækjum.
Eftirfarandi fylgir:
- Ísskápur og uppþvottavél.
- Þvottavél og þurrkari.
- Sófi (svefnsófi).
- Rúm, borð og stólar.
🐾 Gæludýr eru velkomin!
Staðsetningin er einstaklega góð. Stutt er í alla helstu þjónustu, meðal annars leikskóla, skóla, matvöruverslanir, apótek, líkamsrækt og Smáralind (allt í um 5 mín göngufæri). Mjög góð staðsetning fyrir þá sem vilja hafa þjónustu og afþreyingu innan seilingar.
Leiguskilmálar:
- Leiga er 325.000 kr á mánuði.
- Hiti, rafmagn og hússjóður innifalið í leigu.
- Tveggja mánaða trygging.
- Leiga greidd fyrirfram.
- Fast leiguverð – ekki vísitölutengt.
- Gæludýr leyfð.
🔑 Laus strax!
Falleg, notaleg og vel staðsett íbúð.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
325.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
4 nóv 2026
Leigutímabil
6 - 18 mánuðir
Fyrsti mánuður
325.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 650.000 krInnflutningsverð
975.000 kr
Leigt út af Dagrún Dögg Jónsdóttir