




Nóatún 30
105 Reykjavík
Björt og falleg íbúð í litlu fjölbýlishúsi (6 íbúðir) við miðbæ Reykjavíkur. Eignin verður leigð frá 15. janúar til 15. júní með möguleika á framlengingu. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi, eitt nokkuð stórt og annað frekar lítið) með tvölfaldri stofu þar sem auðvelt er að útbúa þriðja svefnherbergið ef óskað er eftir. Litlar svalir eru á eigninni og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu í kjallara. Frábært útsýni yfir miðbæinn, Hallgrímskirkju og til sjávar. Húsgögn fylgja með. Mjög snyrtilegur stigagangur, rólegt sambýli. Næg gjaldfrjáls bílastæði. Frábær staðsetning, stutt í skóla, leikskóla, háskóla/Listaháskólann og almenna verslun og þjónustu. Matvöruverslun í 2 mínútna fjarlægð, strætó, útivistasvæði mjög nálægt og auðvelt að komast á bíl út á stærri umferðargötur.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
390.000 kr
Laus frá
15 jan 2027
Leigutímabil
5 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 390.000 krInnflutningsverð
780.000 kr
Leigt út af Þórður Sævarsson