




Vorbraut 11
210 Garðabær
Glæný, björt og vel skipulögð stúdíóíbúð við Vorbraut 11
Til leigu er glæný 43,7 m² íbúð á fyrstu hæð við Vorbraut 11 í Garðabæ. Íbúðin er með sérstakt rúmgott svefnrými sem hægt er að stúka af frá stofu með gardínu.
Íbúðin er með nútímalegum innréttingum, ljósum gólfefnum og gólfhita. Eldhúsið er með dökkum viðarinnréttingum, ísskáp og uppþvottavél. Í forstofu og svefnrými eru innbyggðir fataskápar.
Baðherbergið er rúmgott og flísalagt, með sturtu, baðinnréttingu, geymsluhillum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðin er búin sjálfstæðu loftræstikerfi sem tryggir stöðug loftskipti.
Útgengt er á 8,5 m² sérafnotareit með timburverönd og íbúðinni fylgir 5,5 m² geymsla.
Leiguskilmálar:
Íbúðin leigist án húsgagna. Mánaðarleiga er 285.000 kr. Hiti og hússjóður eru innifaldir í leigu en leigjandi greiðir sérstaklega fyrir rafmagn og internet.
Gerð er krafa um tryggingu sem nemur tveggja mánaða leigu. Leigutími er 12 mánuðir með möguleika á framlengingu. Íbúðin er laus til afhendingar frá 28. október 2026.
Húsreglur:
Reykingar og gæludýrahald eru óheimil. Framleiga er ekki leyfð. Óheimilt er að bora í veggi eða festa upp hluti með nöglum eða skrúfum nema með fyrirfram fengnu leyfi leigusala. Miðað er við að hámarki tvo íbúa, en einnig kemur til greina að þriðji íbúinn sé ungt barn.
Áhugasömum er velkomið að senda inn umsókn eða hafa samband fyrir frekari upplýsingar.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
285.000 kr
Laus frá
28 okt 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
285.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 570.000 krInnflutningsverð
855.000 kr
Leigt út af Guðbjörg Gréta Steinsdóttir