




Einivellir 1
221 Hafnarfjörður
ATH: Það þarf að sækja um íbúðina í gegnum síðuna okkar: https://www.ivera.is/leita-ad-ibud/hafnarfirdi-77.3fermetrar-s5-ibu-0001re
Einstök 3ja herbergja íbúð laus til leigu í lok október! Velkomin í stílhreint 77,3 fermetra heimili á fyrstu hæð við Einivelli 1 á Völlunum í Hafnarfirði. Íbúðin losnar í lok október.
Eldhús og stofa mynda eitt stórt fjölskyldurými og þaðan er gengið út á svalir. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum, og baðherbergið er stórt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Þetta er heimili fyrir þig sem vilt búa í rólegu og barnvænu hverfi, nálægt leik- og grunnskóla og helstu samgöngum. Gæludýr eru leyfð, svo öll fjölskyldan getur flutt með.
ATH: íbúðin er leigð út án húsgagna.
Nánari lýsing
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fatahengi.
Eldhús og stofa: Samliggjandi rými. Úr stofu er gengið út á svalir.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.
Baðherbergi: Stórt, með sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsla: 6 fm geymsla innan íbúðar.
Velkomin heim!
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 370.000 kr. á mánuði og er tengt vísitölu.
Hiti og rekstur sameignar eru innifalin í leiguverði.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.110.000 krInnflutningsverð
1.480.000 kr

Leigt út af Ívera ehf.