




Rauðarárstígur 33
105 Reykjavík
Til leigu er björt og vel skipulögð 82 m² íbúð á 4. og efstu hæð í lyftuhúsi við Rauðarárstíg 33 í Reykjavík. Íbúðin er á tveimur hæðum og einkennist af mikilli lofthæð, opnu alrými og sjarmerandi svefnherbergi í risi. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðu geymsluplássi og skáp undir stiga. Þvottahús: Inn af forstofu er sérþvottahús með hvítri innréttingu og frysti sem fylgir íbúðinni. Eldhús, stofa og borðstofa: Mynda bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð og innfelldri lýsingu. Úr stofunni er gengið út á stórar og sólríkar svalir. Eldhúsið er með hvítri innréttingu, vönduðum eldhústækjum, uppþvottavél, örbylgjuofni og ísskáp sem fylgir íbúðinni. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu og sturtuklefa. Svefnherbergi: Stigi liggur upp í rishæð þar sem er rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi. Bílageymsla og sameign: Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu, sem er mikill kostur á þessum stað. Einnig er aðgangur að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Á baklóð hússins er gróið útisvæði með leiktækjum.
Húsgögn sem sjást á myndum geta leigst með.
Staðsetning: Rauðarárstígur 33 er vel staðsettur í miðborg Reykjavíkur, þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús og fjölbreytta þjónustu.
Fylgifé
Uppþvottavél
Ísskápur
Örbylgjuofn
Bílskúr
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
31 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.050.000 krInnflutningsverð
1.400.000 kr
Leigt út af Halldór Már Sæmundsson