




Krummahólar 4
111 Reykjavík
Fullbúin eign, fullkomin fyrir nemendur í skiptinámi.
Tveggja herbergja íbúð með yfirbyggðum svölum og frábæru útsýni, laus til leigu frá janúar út apríl, með möguleika á framlengingu fram í maí.
Um er að ræða 72,9 fm íbúð á 8. og efstu hæð í lyftuhúsi. Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð að innan á síðustu árum og leigist með helstu húsgögnum, svo nýr leigjandi getur flutt beint inn.
Svalirnar hafa verið yfirbyggðar og þar er borðstofa með útsýni yfir borgina og til fjalla. Þaðan er gengið út á opnar svalir.
Eldhúsið er nýlegt og vel búið, með uppþvottavél, spanhelluborði, bakarofni og langri borðplötu við glugga þar sem gott er að sitja. Stofan er björt og rúmgóð. Svefnherbergið er með hjónarúmi og stórum fataskáp og baðherbergið er flísalagt með sturtu. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Húsinu er vel við haldið og þar er lyfta, mynddyrasími, myndavélakerfi og upphitað bílaplan. Hleðslustöð fyrir rafbíla er rétt við húsið og stutt er í verslun, Breiðholtslaug, skóla og útivist í Elliðaárdal.
Hiti, rafmagn og net er innifalið í leiguverðinu. Krafist er tryggingar sem nemur eins mánaðar leigu.
Reykingar og gæludýr eru ekki leyfð. Sérgeymsla í sameign fylgir ekki.
Áhugasamir eru beðnir um að senda skilaboð með stuttri kynningu á sér.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
Laus frá
8 jan 2027
Leigutímabil
3 - 4 mánuðir
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 350.000 krInnflutningsverð
700.000 kr
Leigt út af Emil Örn Benediktsson