




Sóltún 13
105 Reykjavík
Falleg 4ra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og stórum sólpalli í suður á vinsælum stað að Sóltúni 13 í Reykjavík 105. Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Eldhús og stofa mynda stórt og opið alrými með parketi á gólfi. Mikið skápapláss í eldhúsi. Úr stofu er gengt út á sólpall sem snýr í suður. Svefnherbergin þrjú eru öll parketlögð og með góðum fataskápum. Baðherbergi 1 inn af hjónaherbergi er flísalagt. góð innrétting og baðkar. Baðherbergi 2 út frá alrými er flísalagt, góð innrétting og sturta. Þvottahús innan íbúðar, rúmgott með miklu skápaplássi og á gólfum eru flísar. Geymsla í snyrtilegri sameign í kjallara. Sér stæði í lokuðum bílakjallara. Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð. Góðar almenningssamgöngur, verslanir og þjónusta í næstu götu. Formlegur húsaleigusamningur verður gerður og skráður í Leiguskrá HMS, þannig að leigjandi geti sótt um húsnæðisbætur að uppfylltum skilyrðum. Leigist til 1. júlí 2027.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Bílskúr
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
390.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
6 - 8 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 390.000 krInnflutningsverð
780.000 kr
Leigt út af Stefán A Halldórsson