




Baughamar 23
221 Hafnarfjörður
Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á 3. hæð við Baughamar 23 í Hamranesi. Íbúðin er laus frá 1. desember og getur leigst með eða án húsgagna, eftir því hvað hentar leigjanda.
Um er að ræða snyrtilega og vel skipulagða íbúð í nýlegu fjölbýli. Íbúðin skiptist í forstofu, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús.
Í forstofunni er innbyggður fataskápur. Eldhúsið er með ljósri innréttingu og eyju með spanhelluborði og barborði, og þar eru bæði uppþvottavél og bakaraofn. Stofan er með stórum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu. Í svefnherberginu er stór fataskápur með sex hurðum. Baðherbergið er flísalagt, með sturtu með glervegg og upphengdu salerni.
Hamranesið er rólegt hverfi og stutt út í náttúruna, til dæmis að Hvaleyrarvatni og Helgafelli. Leik- og grunnskóli eru í göngufæri.
Íbúðin hentar vel einstaklingi eða pari.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
315.000 kr
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
3 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
315.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 630.000 krInnflutningsverð
945.000 kr
Leigt út af Trausti Gabríel Ævarsson