




Safamýri 33
108 Reykjavík
Falleg björt og mikið endurnýtt 84,4m2 íbúð á neðstu hæð í þríbýlishúsi með sérinngangi við Safamýri 33 til leigu. Mánaðarleiga er 335.000 kr. Tryggingar, jafnvirði tveggja mánaða leigu, er krafist. Leigutíminn er tímabundinn í 9 mánuði. Leigjendur bera ábyrgð á kostnaði við rafmagn en hússjóður er innifalinn. Reykingar eru bannaðar en gæludýr velkomin. Leigist með ísskáp og uppþvottavél.
Húsið stendur innst í botnlanga.
- Íbúðin er skráð 84,8 fm, 5 fm sér geymsla
- Kjallarahæð, lítið niðurgrafin
- Sér inngangur. Má hafa gæludýr
- 3ja herbergja - tvö rúmgóð svefnherbergi
- 2020 Endurnýjaður gluggi í stofu og opnanlegur á baði
- 2019 Eldhús endurnýjað
- 1 Baðherbergi endurnýjað
- 2016 Skólplagnir voru fóðraðar út í götu
- Verönd: Séreignarreitur undir svölum efri hæðar
Eignin skiptist í: Forstofu, hol, eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing: Forstofa: Flísalögð með fatahengi og skóskáp. Hol: Af forstofu er flísalagt rúmgott hol. Þaðan er gengið inn allar aðrar vistarverur eignarinnar. Eldhús: Flísalagt með L-laga eikar/hvítri, dökkbæsaðri innréttingu með skápum/skúffum, ofn í hæð, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Svefnherbergi: Parketlagt, rúmgott með skáp. Snýr út í garðinn. Svefnherbergi: Parketlagt,óvenju rúmgott með skáp. Útgengi er á hellulagða verönd. Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Vaskinnrétting, "walk in" sturta og salerni. Gluggi er á baði. Þvottahús: Er sömu hæðar í sameign. Geymsla: Í sameign 5 fm. Sömu hæðar, með hillum.
Lóð: Sameiginleg stór 84.8 fm lóð sem snýr með garðinn til suðvesturs.
Virkilega falleg eign innst í botnlanga, á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í öll skólastig; leik-grunn og framhaldsskóla og alla helstu þjónustu í hverfinu og Kringlan rétt hjá.
Fylgifé
Uppþvottavél
Ísskápur
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 5 leigutakar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Fuglar leyfðir
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
335.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
19 okt 2026
Leigutímabil
3 - 9 mánuðir
Fyrsti mánuður
335.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 670.000 krInnflutningsverð
1.005.000 kr
Leigt út af Elín Viðarsdóttir