




Heiðarstekkur 8C
800 Selfoss
Glæsileg íbúð til leigu á Selfossi Til leigu er vel skipulögð íbúð á jarðhæð í nýbyggðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað á Selfossi. Íbúðin er sérlega björt, hlýleg og nútímaleg með vandaðar innréttingar og gólfefni. Íbúðin skiptist í:
3 rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum Opið og bjart alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi Glæsilegt baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél Svalir í suður með fallegu útsýni. Sér geymsla fylgir íbúð. Sameiginleg hjólageymsla. Staðsetningin er einstaklega barnvæn með stuttri göngufjarlægð í: Leikskóla Grunnskóla Verslun og þjónustu Útivistarsvæði Við leitum að reglusömu og ábyggilegu fjölskyldufólki sem hefur áhuga á langtímaleigu. Íbúðin er laus til afhendingar strax og æskilegt er að leigutaki sé með góð meðmæli.
Umsækjandi útvegar tryggingu sem nemur 3 mánaða leigu í formi bankaábyrgðar, ábyrgðar frá Leiguskjól eða að tryggingarupphæð er lögð inn á reikning leigusala.
Skila þarf inn lánshæfismati frá Credit Info, Skila þarf inn sakavottorði.
Þegar trygging liggur fyrir er hægt að ganga frá undirritun leigusamnings rafrænt.
Leigusamningar eru undirritaðir rafrænt. Óskir þú eftir að sækja um húsaleigubætur, er sótt um það rafrænt á heimasíðu HMS.
Leigu skal ávallt greiða fyrsta dag hvers mánaðar. Leiguverð er ávallt tengt neysluvísitölu og er endurskoðað mánaðarlega m.v vísitöluna. Leiguverð er endurskoðað í samræmi við húsaleigulög.
Í upphaf leigu er gerð ástandslýsing á íbúðinni sem gerð er bæði við innskoðun og útskoðun á eigninni sem leigusali og leigjandi greiða 50/50 saman.
Skil á íbúðinni og úttekt þegar leigu líkur miðast við að íbúðin er tilbúin til innflutnings fyrir næsta leigutaka. Við afhendum gátlista fyrir skil. Grundvallarreglan um frágang íbúða er að þær séu hreinar í hólf og gólf, veggir heilir, leigutaki skal spartla í þau göt sem hann hefur gert á veggi eignarinnar og íbúð skal vera nýmáluð.
Gluggar og svalahurðir eiga að vera hreinir einnig skulu gólf ávallt þrifin (ekki nauðsynlegt að bóna gólfið). Þrífa skal allar lofttúður og skápa utan sem innan og tæki sem tilheyra íbúðinni. Perustæði eiga að vera með ljósaperum í öllum herbergjum.
Leigutaki skal láta aflétta leigusamningi (hafi honum verið þinglýst) við lok leigusambands. Ef samningi er ekki aflétt þá tefur það fyrir uppgjöri og endurgreiðslu á leigutryggingu.
Þegar lokaúttekt hefur farið fram hefur leigutaki ekki kost á því að gera við eða framkvæma aðrar viðgerðir á íbúðinni, íbúðin á að vera tilbúin frá leigutaka þegar lokaúttekt fer fram.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 6 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
330.000 kr
Laus frá
19 okt 2026
Leigutímabil
3 - 10 mánuðir
Fyrsti mánuður
330.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 990.000 krInnflutningsverð
1.320.000 kr
Leigt út af Sveinn Óskar Þorsteinsson