




Jófríðarstaðavegur 10
220 Hafnarfjörður
Rúmgóð þriggja svefnherbergja íbúð með stórum svölum í suðurbænum í Hafnarfirði.
Um er að ræða íbúð á tveimur hæðum, miðhæð og rishæð, til leigu við Jófríðarstaðaveg 10 í Hafnarfirði, með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum (þar af eitt með baðkari en hitt er aðeins salerni). Íbúðin er um 90 skráðir fermetrar en gólfflötur er stærri þar sem talsvert er undir súð á rishæðinni. Hjónaherbergið er stórt með rúmgóðum fataskáp og hin herbergin tvö eru minni (barnaherbergi).
Eldhúsið er nýlegt og er búið innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Stórar svalir með skjólvegg þar sem oft er mjög hlýtt og skjólsælt. Garður með hellulögn kringum húsið, grænu svæði og ýmsum fallegum blómum.
Í göngufæri við leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, Suðurbæjarlaugina.
Strætóleið 1 stoppar í 2 mín fjarlægð.
Mánaðarleigan er 370.000 kr. og upphæð tryggingar samsvarar tveggja mánaða leigu eða 740.000 kr. Leigjendur bera ábyrgð á hita, rafmagni og internetkostnaði. Leigutími er ótímabundinn. Kettir, nagdýr, fiskar og fuglar eru leyfðir eftir samkomulagi. Reykingar eru ekki leyfðar innan íbúðarinnar. Hámarksfjöldi íbúa er fjórir. Húsgögn eru samningsatriði við leigusala.
Endilega sendið skilaboð með helstu upplýsingum um ykkar hagi, ef áhugi er til staðar.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
370.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Halla Guðrún Jónsdóttir