




Sóltún 13
105 Reykjavík
Falleg 4ra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og stórum sólpalli í suður á vinsælum stað að Sóltúni 13 í Reykjavík 105. Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Eldhús og stofa mynda stórt og opið alrými með parketi á gólfi. Mikið skápapláss í eldhúsi. Úr stofu er gengt út á sólpall sem snýr í suður. Svefnherbergin þrjú eru öll parketlögð og með góðum fataskápum. Baðherbergi 1 inn af hjónaherbergi er flísalagt. góð innrétting og baðkar. Baðherbergi 2 út frá alrými er flísalagt, góð innrétting og sturta. Þvottahús innan íbúðar, rúmgott með miklu skápaplássi og á gólfum eru flísar. Geymsla í snyrtilegri sameign í kjallara. Sér stæði í lokuðum bílakjallara. Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð. Góðar almenningssamgöngur, verslanir og þjónusta í næstu götu. Formlegur húsaleigusamningur verður gerður og skráður í Leiguskrá HMS, þannig að leigjandi geti sótt um húsnæðisbætur að uppfylltum skilyrðum.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Uppþvottavél
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
410.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
16 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
410.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 820.000 krInnflutningsverð
1.230.000 kr
Leigt út af Stefán A Halldórsson