




Hafnarbraut 14A
200 Kópavogur
Tímabundin leiga í rúmgóðri íbúð við sjóinn á Kársnesi Björt og rúmgóð 100,7 m², 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, stórt og bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, baðherbergi, sérþvottahús, geymslu og svalir. Lyfta er í húsinu og sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Staðsetningin er einstaklega góð, í rólegu og fallegu hverfi við sjóinn með göngu- og hjólastígum allt í kring. Örstutt er í Sky Lagoon, stutt í verslun og þjónustu og um 10 mínútna akstur í miðbæ Reykjavíkur. Góðar samgöngur eru einnig í nágrenninu. Íbúðin er nú til sölu og er því um tímabundna leigu að ræða. Við getum tryggt að minnsta kosti 3 mánaða leigutíma, en leigan gæti mögulega orðið töluvert lengri eftir því hvenær eignin selst og hvenær afhending til kaupanda fer fram. Þetta gæti hentað sérstaklega vel þeim sem eru í millibilsástandi með húsnæði – til dæmis á meðan beðið er eftir afhendingu á nýrri eign, verið er að byggja eða gera upp húsnæði, vegna tímabundins starfs eða dvalar á höfuðborgarsvæðinu, eða einfaldlega fyrir þá sem þurfa gott heimili næstu mánuði án þess að vilja skuldbinda sig til langs leigutíma. Þar sem eignin verður áfram í sölu er það skilyrði leigunnar að leigutaki geti veitt aðgang að íbúðinni fyrir fyrirfram skipulagðar söluskoðanir. Þær yrðu ávallt boðaðar með fyrirvara og skipulagðar í samráði við leigutaka. Við erum opin fyrir að semja um nánari útfærslu leigunnar, þar á meðal lengd leigutíma, mögulegan afhendingartíma og tryggingarfé, þannig að fyrirkomulagið henti báðum aðilum sem best. Við leitum að traustum og snyrtilegum leigutaka sem er sáttur við þetta fyrirkomulag og mun ganga vel um eignina.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Svalir
Geymsla
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
400.000 kr
Leigutímabil
3 - 6 mánuðir
Fyrsti mánuður
400.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 800.000 krInnflutningsverð
1.200.000 kr
Leigt út af Telma Sigurgeirsdóttir