




Stefnisvogur 40
104 Reykjavík
Til leigu er falleg og ný 2ja herbergja íbúð á 1. hæð að Stefnisvogi 40 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Íbúðin er 65,8 m² og henni fylgir 7,8 m² sérgeymsla í kjallara, þannig að heildarstærð séreignar er 73,6 m². Einnig fylgir íbúðinni sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðin er í nýju og vönduðu fjölbýlishúsi og er einstaklega vel frágengin. Húsið er steinsteypt, vel einangrað og klætt að utan með álklæðningu. Snjóbræðsla er á helstu gönguleiðum við húsið. Í húsinu er lyfta, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og innangengt er úr bílageymslu í stigahúsið. Hún hentar vel einstaklingi eða pari sem leitar að nútímalegu og þægilegu heimili á góðum stað á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna.
Helstu upplýsingar: • 2ja herbergja íbúð • 65,8 m² íbúð + 7,8 m² sérgeymsla = 73,6 m² séreign samtals • 1. Hæð • Upphituð sérgeymsla í kjallara. • Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu. • Vönduð AEG heimilistæki ásamt uppþvottavél, ísskáp og þvottavél. • Harðparket á helstu rýmum og flísar á baðherbergi og þvottarými. • Sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar. • Dökkbrún viðaráferð á eldhúsinnréttingu og skápum í anddyri ásamt ljósri Quartz-borðplötu. • Baðherbergi með flísalögðum sturtuveggjum, Quartz-borðplötu og borðhandlaug. • Gólfhiti um alla íbúð og sjálfstætt loftræstikerfi.
Fylgifé
Þvottavél
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Bílskúr
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
8 - 15 mánuðir
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 700.000 krInnflutningsverð
1.050.000 kr
Leigt út af Auður Siemsen