




Espigerði 2
108 Reykjavík
FALLEG AFAR RÚMGÓÐ 4-5.HERBERGJA 166.9 FM ÍBÚÐ Á TVEIMUR HÆÐUM (6+7. HÆÐ) Í GÓÐU LYFTUHÚSI ÁSAMT STÆÐI Í UPPHITAÐRI BÍLAGEYMSLU. TIL LEIGU FRÁ 1.OKT.2026. SKIPULAG: Anddyri með góðum skápum. Hol með föstum hönnunarhillum. Gestasnyrting innaf flísalögð með glugga. Eldhús með deski, góð innrétting (hvíttuð eik), borðplötur úr graníti. Við hlið eldhúsins er borðstofa þar sem er útgengt á samfeldar vestur og norður svalir sem liggja meðfram íbúðinni. Glæsilegt útsýni. Rúmgóð stofa. Nýlegir ofnar í stofu og borðstofu (skv,selj.). Úr holi liggur teppalagður stigi uppá efri hæðina. Efri hæð: Hol / sjónvarpshol með góðum skápum. Þvottahús með vaski. Lítið fataherbergi. Baðherbergi flísalagt með sturtu, innréttingu, upphengdu salerni og nýlegum handklæðaofni. Í dag eru svo 3 svefnherbergi en tvö hafa verið sameinað í eitt stórt, hægt að beyta því með einum vegg og hurð í 3 svefnherbergi. Útgengt úr hjónaherberginu útá austur svalir innfeldar með glæsilegu útsýni á austurhluta Esju, Bláfjöll og fl. Hvítir skápar í hjónaherberginu. 166,9 fm sérgeymsla á jarðhæðinni. Eigninni fylgir gott stæði í upphitaðri bílageymslu við hlið hússins. Þvottastæði í bílgeymslunni Í sameign er sameiginlegt rúmgott þvottaherbergi á jarðhæðinni með sameininlegum vélum, sameiginleg snytring þar við hliðina auk hjólageymslu og stóru leikherbergi fyrir börn. Á efstu hæðinni er sameiginlegt fundarherbergi með stórum sameiginlegum útsýnissvölum útaf til suðurs. Stórbrotið óhindrað útsýni þar (sjá myndir). ÁHUGASAMIR UMSÆKJENDUR ATHUGIÐ: Til að umsókn sé skoðuð þurfu eftirfarandi upplýsingar að berast: Nafn/Nöfn, fjölskyldustærð, þjóðerni, atvinna leigutaka og heildartekjur (fyrir utan skatt+gjöld), meðmæli (ef til eru). Sendist á umsóknarsíðuna eða á ingolfur@valholl.is
Fylgifé
Svalir
Geymsla
Bílskúr
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
5 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
31 Oct 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 720.000 krInnflutningsverð
1.080.000 kr
Leigt út af Ingólfur Geir Gissurarson