




Snorrabraut 54B
105 Reykjavík
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is
Glæsileg íbúð til leigu í nýbyggingu að Snorrabraut 54B í Reykjavík Velkomin í glæsilega tveggja herbergja 53,9 fm íbúð að Snorrabraut. Við kynnum nýbyggingu á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við bygginguna er að finna bæði fjölbreytta afþreyingu og alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, Laugarveginn og úrval veitingastaða og kaffihúsa. Allt er innan þægilegs göngufæris. Staðsetningin er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta menningarlífsins og þess fjölbreytta mannlífs sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.
Nánari lýsing Við inngang íbúðarinnar er fataskápur þar sem hægt er að hengja af sér. Íbúðin er með einu svefnherbergi sem er búið fataskáp. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með glæsilegu og nútímalegu yfirbragði. Eldhúsið er með nýtískulegum innréttingum og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir íbúð. Úr stofurými er útgengt á verönd þar sem hægt er að njóta útiveru. Baðherbergið skartar fallegum innréttingum og býður upp á aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum. Geymsla 6,9 fm að stærð, fylgir íbúðinni.
Bílastæði í bílakjallara fylgir ekki íbúðinni.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 330.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
330.000 kr
Laus frá
29 Sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
330.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 990.000 krInnflutningsverð
1.320.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir