




Þórðarsveigur 34-36
113 Reykjavík
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is
Björt þriggja herbergja íbúð til leigu í Grafarholti
Íbúðin er 77,2 fermetrar og staðsett á fjórðu hæð í lyftuhúsi. Hér líður þeim vel sem vilja búa í hæfilegri fjarlægð frá miðborginni en jafnframt nálægt allri helstu þjónustu. Auðvelt er að skapa notalegt og heimilislegt umhverfi í íbúðinni. Fjölbreyttar gönguleiðir eru í nágrenninu og því tilvalið að skella sér í göngutúr við tækifæri. Í Grafarholti er góð þjónusta og allt til alls fyrir þægilegt heimilislíf.
Nánari lýsing Eldhús og stofa eru í opnu rými, með útgengi úr stofu út á svalir. Í eldhúsinu eru bakaraofn, helluborð og eldhúsvifta ásamt tengi fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum og er með innangengri sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 346.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur á sameign.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól
Hér er hægt að sjá íbúina í 3D: https://my.matterport.com/show/?m=8Z4MdpNjxhd
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
346.000 kr
Laus frá
29 Sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
346.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.038.000 krInnflutningsverð
1.384.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir