




Vefarastræti 28-30
270 Mosfellsbær
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is
Falleg 3 herbergja íbúð með frábæru útsýni í Helgafellslandi
Velkomin í bjarta og sjarmerandi 69,3 fm þriggja herbergja íbúð við Vefarastræti 28–30 í hinu vinsæla Helgafellslandi í Mosfellsbæ.
Íbúðin er á 4. hæð í lyftuhúsi og býður upp á notalegt og vel skipulagt rými. Hún skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Úr íbúðinni er fallegt útsýni og stórar svalir sem skapa frábært tækifæri til að njóta útiveru og útsýnis.
Helgafellslandið er rólegt og fjölskylduvænt hverfi, umlukið fallegri náttúru og góðum útivistarsvæðum. Stutt er í leikskóla og grunnskóla, auk þess sem önnur helsta þjónusta er í þægilegri nálægð.
Með íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara, sem er mikil þægindi og eykur öryggi og aðgengi allt árið um kring.
Leiguverð er 307.000 kr. á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Allar upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
307.000 kr
Laus frá
29 Sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
307.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 921.000 krInnflutningsverð
1.228.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir