




Súðarvogur 20
104 Reykjavík
Afar fallegt og mikið endurnýjað atvinnuhúsnæði á frábærum stað við Súðarvog 20 í Reykjavík (ekið inn frá Kænuvogi). Um er að ræða 101,6 fermetra atvinnuhúsnæði sem hefur verið nýtt undir skrifstofur undanfarin ár ásamt því að hluti af húsnæði er rúmgóður skúr með innkeyrsluhurð. Húsnæðið var allt endurnýjað á smekklegan máta árið 2011 og lítur vel út í dag. Möguleiki er að nýta húsnæðið í tvennu lagi og skipta því upp. Einnig er hægt að taka upphækkun (2 þrep næst gluggum/þar sem skrifborð voru) og vera með eignina á einni hæð. Auk þess er hægt að taka niður vegg sem stúkar af skúr og opna allt rýmið. Eldhús og baðherbergi inn af húsnæði. Lofthæð yfir 3 metrar.
Frábært húsnæði fyrir lítið fyrirtæki, hönnuði, arkitekta, listamenn, lagerhúsnæði og aðra sem vilja vera miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Fallegt útsýni til austurs og bílastæði fyrir framan húsnæðið.
Fylgifé
Ísskápur
Bílskúr
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
450.000 kr
Laus frá
25 Sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
450.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 900.000 krInnflutningsverð
1.350.000 kr
Leigt út af Dagmar Silja Kristjönu Svavarsdóttir