

Miðtún 3
105 Reykjavík
Gengið er upp nokkrar tröppur að sérinngangi íbúðarinnar. Þar er komið inn í flísalagða forstofu. Innaf forstofunni er svo parketlagt svefnherbergi/barnaherbergi. Tvöföld, parketlögð stofa er rúmgóð og var björt (borðstofa & stofa), en stofu hefur nú verið breytt í svefherbergi/aukarými og er léttur veggur og hurð á milli. Eldhús er flísalagt og er þar ljós innrétting og steinn á borðum. Hjónaherbergi er parketlagt. Á flíslögðu baðherberginu er svo nuddbaðkar og vegghengt salerni. Möguleiki er að hafa þvottavél og þurrkara á baðherbergi (og gert ráð fyrir því). Lítill garður er aðgengilegur að framan, sem að aftanverðu húsinu. Húsið er tvíbýli en aðgangur íbúðarinnar er sérinngangur. Stutt er í miðbæ Reykjavíkur, verslanir/þjónustu, sem og almenningssamgöngur, en húsið situr við mörk póstnúmera 105 og 101 Reykjavíkur. Hlemmur er í göngufæri (uþb. 5mín), sem og Lækjartorg (uþb. 15mín). Leitað er reglusamra og skilvísra leigjenda. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og skoða til að kynna sér íbúðina.
Fylgifé
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
Laus frá
1 Oct 2026
Leigutímabil
3 - 25 mánuðir
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingarfé
420.000 krInnflutningsverð
840.000 kr
Leigt út af Ásbjörn J Georgesson