




Asparskógar 11
300 Akranes
Björt og snyrtileg 2ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi sem er laus strax!
Um er að ræða 66,4m² íbúð í nýlegu húsi (byggt 2022) við Asparskóga 11 á Akranesi. Íbúðin er endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit með skjólveggi til suðurs, beint út úr stofunni. Rólegt og barnvænt hverfi, með nóg af bílastæðum, stutt í leikskóla, skógræktina og í matvörubúð.
- Anddyri er flísalagt með góðu skápaplássi.
- Hol er með parketi og auka skápaplássi.
- Eldhús með HTH innréttingum.
- Stofan er rúmgóð með útgengi á sérafnotareit.
- Svefnherbergi er rúmgott með skápaplássi.
- Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
- Neðri hluti glugga í stofu og svefnherbergi eru filmaðir, sem og útgengishurðin út á sérafnotareitinn, sem gefur gott næði.
- Sameiginleg hjólageymsla í sameign.
- Uppþvottavél fylgir íbúðinni, en einnig getur ísskápur og þvottavél með innbyggðum þurrkara fylgt með ef þess er óskað.
Leiguverð er 265.000 kr á mánuði með öllu inniföldnu, nema interneti. Hægt að semja um tryggingu. Leigusamningur verður skráður hjá HMS, svo hægt er að sækja um húsnæðisbætur. Gæludýr eru velkomin, eftir samkomulagi.
Fylgifé
Uppþvottavél
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Mánaðarleiga
265.000 kr
Leigutímabil
6 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
265.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 265.000 krInnflutningsverð
530.000 kr
Leigt út af Rúna Björt Ármannsdóttir