




Skeljagrandi 3
107 Reykjavík
Björt og falleg 70 fm, 2ja herbergja íbúð í Vesturbænum til langtímaleigu. Íbúðin er laus strax.
Íbúðin er á 4. hæð (efsta hæð, engin lyfta) með einu svefnherbergi, rúmgóðri stofu, eldhúsi, baðherbergi og svölum. Stæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og hluti af geymslu getur fylgt eftir samkomulagi.
Íbúðin leigist án húsgagna, en henni fylgja ísskápur/frystir, uppþvottavél og eldavél.
Leitað er að traustum og reglusömum leigjanda/leigjendum sem hafa áhuga á langtímaleigu. Íbúðin hentar vel einstaklingi eða pari. Reykingar eru ekki leyfðar og gæludýr eru eftir samkomulagi.
Leigutími: 12 mánuðir með möguleika á framlengingu Laus: Strax eða 1. október Leiga: 310.000 kr. á mánuði Trygging: 2 mánaða trygging í formi bankaábyrgðar eða eftir samkomulagi
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn í gegnum Myigloo með stuttum upplýsingum um sig, hverjir myndu búa í íbúðinni, atvinnu/tekjur og hvenær óskað er eftir að flytja inn.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Bílskúr
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Fiskar leyfðir
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
300.000 kr
Laus frá
18 sep 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
300.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 600.000 krInnflutningsverð
900.000 kr
Leigt út af Unnur Aldís Kristinsdóttir