




Háaleitisbraut 121
108 Reykjavík
Til leigu er björt og falleg 106 m² fjögurra herbergja íbúð á Háaleitisbraut. Íbúðin hefur nýlega verið endurnýjuð að hluta og er nýmáluð, með glænýju parketi og nýjum hurðum.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús og baðherbergi. Í eldhúsi er uppþvottavél ásamt glænýjum ísskáp.
Úr íbúðinni er gengið út á rúmgóðar suðursvalir sem snúa út í gróinn garð með leiksvæði fyrir börn – notalegt og fjölskylduvænt umhverfi.
Eigninni fylgir rúmgóð sérgeymsla í kjallara. Í sameiginlegu þvottahúsi er sérstakt stæði fyrir íbúðina þar sem hægt er að koma fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í Kringluna, verslanir, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, almenningssamgöngur og aðra helstu þjónustu.
Íbúðin hentar vel fjölskyldu eða öðrum sem leita að rúmgóðu og snyrtilegu langtímahúsnæði á góðum stað í Reykjavík.
Leiguverð er vísitölutengt miðað við vísitölu neysluverðs.
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Ísskápur
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
395.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
23 Sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 790.000 krInnflutningsverð
1.185.000 kr
Leigt út af Lára Herborg Ólafsdóttir