




Klukkuberg 17
221 Hafnarfjörður
Falleg 4ra herbergja 108,9 fm. útsýnisíbúð á tveimur hæðum með sérinngang við Klukkuberg 17 í Hafnarfirði. Björt og vel skipulagða eign með stórkostlegu útsýni til norðurs og suðurs yfir bæði Urriðavatn og Hafnarfjörðinn
Íbúðin er frábærlega staðsett við hliðina á Setbergsgólfvelli og í göngufæri við bæði leikskóla og grunnskóla.
Lýsing : Neðri hæð Mjög opin og með góðu flæði. Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum, inn af forstofu er gestasalerni. Borðstofa fyrir framan rúmgott eldhús með fallegri hvítri innréttingu, viftu, flísum á milli skápa og keramik helluborði. Stofa með niðurteknu lofti að hluta, mikið útsýni frá stofu.
Efri hæð - 46,6 fm: Gengið upp stiga með miklu loftrými, nýlegur þakgluggi hleypir mikilli birtu í rýmið og á efri pall. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, þar af tvö með skápum. Milliloft sem hentar sem svefn-, leik-, eða geymsluloft er í einu af svefnherbergjunum og útgengt er út á svalir úr öðru. Mjög glæsilegt nýlega endurnýjað baðherbergi sem flísalagt er í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt salerni, innrétting við vask og handklæðaofn. Á baðherberginu tengt fyrir þvottavél og þurrkara í góðri innréttingu.
Geymsla 6fm með mjög góðri lofthæð fylgir einnig með eigninni
Hiti, rafmagn og heimanet fylgir með. Íbúðin leigist út án húsgagna
Íbúðin er til leigu í eitt ár með möguleika á því að framlengja leiguna
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
6 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 840.000 krInnflutningsverð
1.260.000 kr
Leigt út af Eydís Gunnarsdóttir