




Elliðabraut 8
110 Reykjavík
Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 73,5 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi. Gengið er inn í anddyri, 6 fm með stórum og góðum fataskáp. Baðherbergi, 6 fm með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 24 fm þar sem gengið er út á 5 fm svalir sem snúa í vestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi. Frá stofu er gengið inn í tvö svefnherbergi, 10 og 11 fm með góðu skápaplássi í báðum herbergjum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum. Geymsla, 4,6 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir ekki íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð kr. 380.000.- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu. Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Fylgifé
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
380.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
36 mánuðir
Fyrsti mánuður
380.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 760.000 krInnflutningsverð
1.140.000 kr

Leigt út af Alma íbúðafélag hf.