




Elliðabraut 4
110 Reykjavík
Stórglæsileg þriggja herbergja, 84,7 fm íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi við Elliðabraut í Norðlingaholti laus til langtímaleigu.
Gengið er inn í anddyri með stórum og góðum fataskáp. Á hægri hönd eru tvö svefnherbergi með góðu skápaplássi í báðum herbergjum. Baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými þar sem gengið er út á verönd sem snýr í vestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi.
Geymsla, 3,7 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir ekki íbúðinni.
Athugið að myndir eru af sambærilegri íbúð í húsinu.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð kr. 395.000.- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu. Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Fylgifé
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
395.000 kr
Leigutímabil
36 mánuðir
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 790.000 krInnflutningsverð
1.185.000 kr
Leigt út af Alma íbúðafélag hf.