




Hverafold 25
112 Reykjavík
Til langtímaleigu 60m2, 2 herbergja íbúð við Hverafold í Grafarvogi frá 1. okt. í 9-12 mánuði. Nýlega voru eldhús, baðherbergi og gólfefni endurnýjuð. Íbúðin er sjálf 60,6 fm og geymsla í kjallara um 6 fm. Mjög góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla og aðra þjónustu.
Íbúðin leigist út fullbúin að undanskildum borðbúnaði og eldhúsáhöldum.
Forstofa er nokkuð rúmgóð með parketi á gólfi og glugga. Eldhús er endurnýjað með fallegri hvítri innréttingu og innbyggðri uppþvottavél, skápa- og vinnupláss. Parket á gólfi. Borðstofa/stofa er bjart og rúmgott samliggjandi opið rými. Þaðan er gengið út á svalir. Úr stofu og svölum er frábært útsýni. Parket á gólfi. Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Hvít skúffueining með handlaug og speglaskáp. Baðkar með sturtuaðstöðu og upphengt salerni. Flísar á gólfi og veggjum. Sérgeymsla er í sameign og er hún ekki inní fermetratölu íbúðarinnar. Hún er um 6 fm. Þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata og skolvaskur. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Verð 320.000 pr mánuð + rafmagn og hiti.
Hreint sakavottorð er skilyrði, tveggja mánaða trygging, gæludýr ekki leyfð og engar reykingar. Meðmæli er kostur.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
320.000 kr
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
320.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 640.000 krInnflutningsverð
960.000 kr
Leigt út af Hafsteinn Zimsen