




Rauðalækur 20
105 Reykjavík
Falleg og vel skipulögð íbúð með sérinngangi á jarðhæð til leigu í 105 Reykjavík, sem er eitt eftirsóttasta hverfi borgarinnar. Stutt er í miðbæ Reykjavíkur, Laugardalinn með sundlaug, íþróttaaðstöðu og grænum svæðum, auk þess sem gott úrval verslana, kaffihúsa og veitingastaða er í göngufæri. Hverfið er vel tengt með almenningssamgöngum og stutt er í skóla og leikskóla, sem gerir það eftirsóknarvert fyrir bæði fjölskyldur og aðra.
Íbúðin sjálf er skráð 85,1 fm hjá Þjóðskrá Íslands. Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott hol, bjarta stofu, hjónaherbergi, herbergi tengt stofu, eldhús, baðherbergi og geymslu.
Forstofan er flísalögð með geymsluplássi fyrir skó og yfirhafnir.
Holið er rúmgott með góðu fatahengi og harðparketi á gólfi. Úr holi er gengið inn í öll önnur rými íbúðarinnar, sem gerir skipulagið einkar þægilegt.
Stofan er björt og rúmgóð með góðum gluggum sem hleypa inn miklu dagsljósi, og er harðparket á gólfi.
Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu og harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum og nýlegum skápum, harðparket á gólfi.
Annað svefnherbergi er einnig með harðparketi á gólfi og tengist stofunni, sem gefur möguleika á sveigjanlegri nýtingu rýmisins.
Baðherbergið er flísalagt bæði í gólfi og á veggjum, með rúmgóðri innréttingu, sturtu og glugga.
Geymsla er innan af holi með góðu hilluplássi, og þaðan er innangengt í snyrtilegt þvottahús í sameign.
Fylgifé
Þvottavél
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
320.000 kr
7 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
6 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
320.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 640.000 krInnflutningsverð
960.000 kr
Leigt út af Tinna Sörens Madsen