




Baugakór 19-23
203 Kópavogur
Falleg þriggja herbergja íbúð í lyftuhúsi með stórum suðursvölum og stæði í bílageymslu til leigu frá 1. október. Íbúðin er í fjölskylduvænu og rólegu hverfi þar sem stutt er í tvo leikskóla og grunnskóla. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu ásamt góðri geymslu í kjallara og aðgengi að sameiginlegum vagna- og hjólageymslum. Íbúðin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, sér þvottahús innan íbúðar, eldhús sem er opið við stofu og borðstofu, ásamt útgengi á suðursvalir. Íbúðin er án húsgagna en þó fylgir uppþvottavél og ísskápur.
Leiguverð er 350.000 kr. per mánuð (hiti, rafmagn og hússjóður innifalinn). Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu. Íbúðin leigist til 1 árs í senn með möguleika á framlengingu. Aðeins reglusamir og reyklausir leigjendur koma til greina. Meðmæli óskast.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 700.000 krInnflutningsverð
1.050.000 kr
Leigt út af Elísabet Guðmundsdóttir