




Strýtusel 3
109 Reykjavík
Til leigu falleg og björt íbúð á jarðhæð í einbýlishúsi í rólegum botnlanga í Seljahverfi. Um er að ræða u.þ.b. 35 fm eins herbergja einstaklingsíbúð sem skiptist þannig: alrými (stofa/svefnherbergi), eldhús með nýlegri innréttingu og nýlegum bakaraofni, nýtt helluborð, nýlega endurnýjað baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél inn á baðherbergi. Stutt er í ýmsa þjónustu og strætó stoppar rétt hjá. Langtímaleiga og leigusamningi verður þinglýst. Möguleiki á húsaleigubótum ef skilyrði þess eru fyrir hendi. Helstu upplýsingar: • Langtímaleiga (12 mán) með möguleika á framlengingu • Leiguverð 200.000 kr. á mánuði • Hiti og rafmagn innifalið – miðað við eðlilega notkun • Sérinngangur • Rólegt og notalegt fjölskylduumhverfi Leitað er eftir reglusömum og ábyrgum leigjanda. Við óskum eftir meðmælum frá fyrri leigusala eða vinnuveitanda. Þriggja mánaða trygging eða bankaábyrgð er skilyrði. Partýhald, reykingar og gæludýrahald er ekki leyfilegt. Áhugasamir gefi upp helstu upplýsingar og meðmæli í skilaboðum.
Fylgifé
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 1 leigutaki
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
200.000 kr
4 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
31 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
200.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 600.000 krInnflutningsverð
800.000 kr
Leigt út af Sandra María Sævarsdóttir