




Markland 12
108 Reykjavík
Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölskylduvænu hverfi í Fossvogi
96 m² íbúð til leigu á 3. og efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi í rólegu og grónu hverfi í Fossvogi. Íbúðin er nýuppgerð að miklu leyti og afar björt með stórum gluggum. Eldhús og stofa snúa í suður en svefnherbergi í norður.
Íbúðin samanstendur af þremur svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og baðherbergi með sturtu og þvottavél. Í eldhúsi er innbyggður ísskápur/frystir, bakaraofn og uppþvottavél. Útgengt er á stórar, um 7 m² suðursvalir með mikilli sól.
Í kjallara fylgir um 6 m² sérgeymsla. Þar er einnig sameiginlegt þvottarými þar sem önnur þvottavél með þurrkara fylgir íbúðinni.
Íbúðin leigist að jafnaði án húsgagna. Hár skápur, sjónvarpsbekkur, sófi, rúm og fleiri húsgögn geta þó fylgt eftir samkomulagi.
Stutt er í almenningssamgöngur og strætó gengur beint í miðbæ og að Háskóla Íslands. Leikvellir, gönguleiðir og græn svæði eru allt í kring.
Í boði er annað hvort ótímabundinn leigusamningur eða 12 mánaða samningur með möguleika á framlengingu.
Leiga er 420.000 kr. á mánuði. Hiti og hússjóður eru innifalin. Rafmagn og internet eru ekki innifalin.
Gerð er krafa um þriggja mánaða húsaleiguábyrgð í gegnum Leiguskjól.
Einungis traustir og reyklausir leigjendur koma til greina. Meðmæli frá fyrri leigusala eru kostur.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
420.000 kr
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
420.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.260.000 krInnflutningsverð
1.680.000 kr
Leigt út af Rafn Erlingsson