




Rauðarárstígur 40
105 Reykjavík
Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á efstu íbúðarhæð – leigist með húsgögnum
Til leigu er björt, falleg og vel skipulögð 56,2 m² þriggja herbergja íbúð að Rauðarárstíg 40, 105 Reykjavík. Íbúðin er á efstu íbúðarhæð í rólegum stigagangi og leigist með húsgögnum.
Íbúðin var endurnýjuð að innan fyrir nokkrum árum og skiptist í forstofu/hol, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi, rúmgott svefnherbergi og annað herbergi sem hefur verið nýtt sem skrifstofa eða gestaherbergi. Harðparket er á gólfum.
Eldhúsið er vel búið með innbyggðri uppþvottavél, ísskáp, helluborði og ofni. Íbúðin er með tvennar svalir, annars vegar út frá eldhúsi og hins vegar út frá svefnherbergi.
Staðsetningin er einstaklega góð – í rólegu og þægilegu hverfi en þó í göngufæri við miðborg Reykjavíkur. Klambratún er í um 1 mínútu göngufjarlægð og Hlemmur í um 3 mínútna göngu. Bakarí er beint yfir götuna og stutt er í Sundhöll Reykjavíkur, verslanir, veitingastaði, kaffihús, líkamsrækt og alla helstu þjónustu.
Hluti af sérgeymslu í risi fylgir leigunni, auk aðgangs að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Sérmerkt bílastæði á baklóð hússins fylgir einnig íbúðinni.
Íbúðin hentar til dæmis vel einstaklingi, pari eða lítilli fjölskyldu sem leitar að þægilegu og vel staðsettu heimili miðsvæðis í Reykjavík.
Íbúðin leigist með húsgögnum til 31. maí 2027 og aðeins reglusömum og skilvísum leigjendum.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Þvottavél
Þurrkari
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
Laus frá
15 nóv 2026
Leigutímabil
6 mánuðir
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 360.000 krInnflutningsverð
720.000 kr
Leigt út af Hafþór Eide Hafþórsson