




Básendi 10
108 Reykjavík
Mjög falleg og björt 2 svefnherbergja íbúð á neðri hæð í einbýli í 108 Reykjavík. Íbúðin er með sér inngangi og miklu næði. Hægt er að ganga út í garð úr íbúðinni, en garðinum er deilt með efri hæð hússins.
Eldhús: Nýlegt og smekklega endurnýjað eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. innbyggð uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum sem veita góða birtu. Fallegt harðparket á gólfi. Verið er að útbúa hurð úr stofu út á sérafnotasvæði eignarinnar sem mun skapa skemmtilega tengingu við útirými.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum. Harðparket á gólfi og gluggi sem veitir góða birtu.
Svefnherbergi II: Bjart og notalegt herbergi með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Glæsilega endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Vegghengt salerni, sturta með glervegg, falleg innrétting með handlaug ásamt góðu skápaplássi og spegli.
Þvottahús: Sérþvottahús innan eignar með vaski, borðplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla/Fatarými: Gott geymslu- og fatarými með hillukerfi sem nýtist vel fyrir fatnað og annað sem þarf að geyma.
Íbúðin leigist án húsgagna.
Fylgifé
Uppþvottavél
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.110.000 krInnflutningsverð
1.480.000 kr
Leigt út af G-Unit ehf.