




Eyravegur 30
800 Selfoss
ATH: Allar umsóknir eiga að berast í gegnum síðuna okkar www.ivera.is. Við tökum ekki á móti umsóknum í gegnum igloo.
Glæsileg 2ja herbergja íbúð í nýju húsi við Eyraveg
Til leigu er einstaklega falleg og vel hönnuð 51,3 fm 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð að Eyravegi 28–30 á Selfossi. Um er að ræða nýja eign þar sem áhersla hefur verið lögð á nútímalegt skipulag, góða birtu og þægindi í daglegu lífi.
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Þaðan tekur við bjart og opið alrými þar sem stofa og eldhús mynda samfellda og rúmgóða heild. Úr stofu er útgengt út á verönd. Í íbúðinni er rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergið er rúmgott og vel búið, með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðin er vel búin þar sem gardínur og lýsing fylgja, og bílastæði eru næg við húsið til sameiginlegra nota. Geymsla fylgir ekki íbúð.
Staðsetning eignarinnar er afar eftirsóknarverð, miðsvæðis á Selfossi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, verslanir, íþróttasvæði og fjölbreytt útivistarsvæði. Hér er því um að ræða þægilegt og vel staðsett heimili sem sameinar nútímalega hönnun og góð lífsgæði.
Myndir eru af sambærilegri íbúð
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 245.000 kr. á mánuði og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur sameignar.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.
Hægt er að velja um tryggingarfé á lokuðum reikningi, bankaábyrgð frá viðskiptabanka eða ábyrgð frá Leiguskjóli.
Fylgifé
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
245.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
245.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 735.000 krInnflutningsverð
980.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir