




Klettamói 4
815 Þorlákshöfn
Allar umsókn þurfa að berast í gegnum síðuna okkar www.ivera.is
Fallegt, bjart og vel skipulagt þriggja herbergja heimili laust til leigu
Velkomin í þriggja herbergja heimili að Klettarmóa 4 í Þorlákshöfn. Íbúðin er 71,1 fm að stærð, staðsett á annarri hæð með sérinngangi úr snyrtilegu stigahúsi. Um er að ræða einstaklega þægilega staðsetningu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði og fjölbreytta útivist — tilvalið fyrir bæði einstaklinga og fjölskyldur.
Nánari lýsing Gengið er inn í forstofu með góðum fataskáp. Í íbúðinni eru tvö rúmgóð og björt svefnherbergi, bæði með fataskápum og gardínum. Stofa og eldhús mynda opið og notalegt alrými sem býður upp á góða samveru. Í eldhúsinu er gott skápapláss og innbyggður ísskápur fylgir. Frá stofu er útgengt á svalir þar sem hægt er að njóta útiveru í rólegu umhverfi. Baðherbergið er snyrtilegt með upphengdu salerni og sturtu. Í íbúðinni er tengi fyrir þvottavél og þurrkara, auk þess sem geymsla er innan íbúðar. Við húsið eru fjölmörg sameiginleg bílastæði og á milli bygginga er skemmtilegt svæði ætlað leik og útivist.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er kr. 286.000 á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leigu er hiti og rekstur sameignar. Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Ísskápur
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Mánaðarleiga
286.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
286.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 858.000 krInnflutningsverð
1.144.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir